
Markmið verkefnisins Þinghald að fornu er að rannsaka minjar um þinghald á Íslandi, kanna aldur, skipulag og ástand þingstaða, staðsetningu þeirra og þróun. Verkefnisstjórar eru Adolf Friðriksson og Sigurður Líndal. Fornleifauppgröftur á Þingvöllum er umfangsmesti hluti verkefnisins en hann hófst sumarið 2002.

Auk uppgraftar á Þingvöllum hafa margvíslegar aðrar rannsóknir verið gerðar. Þingstaðir víða um land hafa verið mældir nákvæmlega upp og leifa týndra þingstaða verið leitað. Þá hafa könnunarskurðir verið grafnir á nokkrum stöðum.
Kristnihátíðarsjóður styrkir rannsóknirnar.