Leita

Í sumar stendur til að grafa í rústir á Hálsi sunnan Kárahnjúka.  Páll Pálsson á Aðalbóli fann tóftirnar og forkönnun Fornleifaverndar ríkisins hefur sýnt að þær eru sennilega frá 11. öld.  Talið er hugsanlegt að þær séu af svonefndu Reykjaseli sem nefnt er í Hrafnkels sögu.

Ljóst er að rústirnar munu fara undir Hálslón og því verða þær rannsakaðar til fullnustu.  Rannsóknin hefst í lok júlí.


 © FSÍ
Bárugötu 3, 101 Reykjavík l tel: +354-5511033 l fax: +354-5511047 l  fsi@instarch.is