
Archaeologia Íslandica (ArchIs)
Rit Fornleifastofnunar Íslands, Archaeologia Íslandica, kom fyrst út í nóvember 1998. Með útgáfu ritsins er stefnt að því að kynna alþjóðlegum lesendahópi fornleifarannsóknir á Íslandi. Ritið birtir nýjar greinar um íslenska fornleifafræði eða efni tengt henni, allt frá landnámi á 9. öld til síðari tíma. Greinarnar eru á ensku. Ritstjóri er dr. Gavin Lucas.
Hægt er að gerast áskrifandi eða panta rit með því að senda bréf á netfangið fsi@instarch.is eða hringja á skrifstofu Fornleifastofnunar Íslands í síma 5511033.