Leita

Svæðisskráning felst í að taka saman gögn, annarsvegar um þekktar fornleifar og hinsvegar um atriði sem geta gefið vísbendingar um staðsetningu og eðli fornleifa. Á þeim grunni er lagt mat á fjölda, dreifingu og eðli menningarminja á viðkomandi svæði, og gerðar tillögur um verndun, nýtingu og frekari athuganir. Heppilegast er að sveitarfélög, héruð eða sýslur sameinist um að láta gera svæðisskráningu enda er það hagkvæmasta leiðin til að fá yfirlit um menningarminjar og afla þeirra heimilda sem nauðsynlegar eru við
aðalskráningu eða vettvangsvinnu. Niðurstaða svæðisskráningar er annarsvegar skýrsla með heildarmati á menningarminjum á athugunarsvæðinu og hinsvegar gagnagrunnur yfir allar þær upplýsingar sem safnað hefur verið og aðalskráning mun síðan byggja á.


Aðalskráning byggist á svæðisskráningu en felst í vettvangsvinnu og miðar fyrst og fremst að því að staðsetja og kortleggja fornleifar. Þá er farið á vettvang, viðtöl tekin við staðkunnuga og gengið á alla minjastaði, þeir skoðaðir og staðsettir á korti. Tóftir eru teiknaðar upp og ljósmyndaðar. Á grunni þeirra upplýsinga er síðan rituð skýrsla þar sem gerð er grein fyrir sögu mannvistar og búskapar á viðkomandi svæði, lýst einkennum menningarminja og              Rústir við ósa Laxár í Aðaldal skráðar
gerðar tillögur um verndun og kynningu.


Deiliskráning er nákvæm rannsókn og/eða uppmæling á einstökum minjastöðum á litlu svæði, t.d. þar sem leggja þarf mat á hvort fjarlægja á fornleifar með uppgrefti eða þar sem nýta á minjastaði fyrir útivist. Ólíkt
svæðis- og aðalskráningu fornleifa er ekki gert ráð fyrir deiliskráningu á öllum minjastöðum. Deiliskráning er fyrst og fremst gerð þar sem verið er að vinna deiliskipulag. Markmið deiliskráningar er að fá nákvæma yfirsýn yfir minjar á litlum, afmörkuðum svæðum.


 © FSÍ
Bárugötu 3, 101 Reykjavík l tel: +354-5511033 l fax: +354-5511047 l  fsi@instarch.is