Leita

 

Í þjóðminjalögum nr. 107/2001 er kveðið á um fornleifaskráningu:

"Skylt er að fornleifaskráning fari fram áður en gengið er frá svæðisskipulagi, aðalskipulagi eða deiliskipulagi eða endurskoðun þess og skal sá sem ber ábyrgð á skipulagsgerð í samræmi við skipulagslög standa straum af kostnaði við skráninguna."

Ennfremur er í 12.-14. grein kveðið á um ábyrgð framkvæmdaaðila gagnvart óvæntum fornleifafundum og fjárútlát vegna hugsanlegra rannsókna.

Í 9. grein er hugtakið fornleif  skilgreint:

"Til fornleifa teljast hvers kyns leifar fornra mannvirkja og annarra staðbundinna minja sem menn hafa gert eða mannaverk eru á, svo sem:
   
a. búsetulandslag, byggðaleifar, bæjarstæði og bæjarleifar ásamt tilheyrandi mannvirkjum og öskuhaugum, húsaleifar hvers kyns, svo sem kirkna, bænahúsa, klaustra og búða, leifar af verbúðum, naustum, verslunarstöðum og byggðaleifar í hellum og skútum;
   
b. vinnustaðir þar sem aflað var fanga, svo sem leifar af seljum, verstöðvum, bólum, mógröfum, kolagröfum og rauðablæstri;
   
c. gömul tún- og akurgerði, áveitumannvirki og leifar eftir veiðar til sjávar og sveita;
   
d. gamlir vegir, stíflur, brýr, vatnsvöð, varir, hafnir og bátalægi, slippir, ferjustaðir, kláfar, vörður og vitar og önnur vega- og siglingamerki ásamt kennileitum þeirra;
   
e. virki og skansar og önnur varnarmannvirki;
   
f. gamlir þingstaðir, meintir hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð;
   
g. áletranir, myndir eða önnur verksummerki af manna völdum í hellum eða skútum, á klettum, klöppum eða jarðföstum steinum og minningarmörk í kirkjugörðum;
   
h. haugar, dysjar og aðrir greftrunarstaðir úr heiðnum eða kristnum sið;
   
i. skipsflök eða hlutar úr þeim.
Minjar 100 ára og eldri teljast til fornleifa, en heimilt er þó að friðlýsa yngri minjar [...]."

Í 64. grein reglugerðar um þjóðminjavörslu segir um fornleifaskráningu:

"Fornleifaskráning skal gerð undir stjórn fornleifafræðings. Við fornleifaskráningu skal þess gætt, að teknar séu saman ritaðar jafnt sem munnlegar heimildir um fornleifar og allir minjastaðir kannaðir á vettvangi, hvort sem fornleifar eru sýnilegar á yfirborði eða ekki. Allir minjastaðir skulu færðir á kort og gerðar lýsingar og uppdrættir af þeim minjum sem sýnilegar eru. Fornleifaskráningu telst því aðeins lokið að út hafi komið fjölrituð, prentuð eða stafræn skýrsla um hana.
Skylt er að fornleifaskráning fari fram áður en gengið er frá skipulagi eða endurskoðun þess samkvæmt skipulagslögum."


 © FSÍ
Bárugötu 3, 101 Reykjavík l tel: +354-5511033 l fax: +354-5511047 l  fsi@instarch.is