Leita

þangaska kv.

[skilgr.] Aska sem verður til þegar þangi er brennt.

[skýr.] Salt var unnið úr þangösku.

þríblaðanæla kv.

[skilgr.] Þríblaða næla er ákveðin tegund bronsnælu frá víkingaöld. Þríblaðanælur minna nokkuð á þriggja blaða smára, þrjú blöð eða tungur sem saman taka í miðju.
[skýr.
] Níu slíkar hafa fundist á Íslandi, flestar í kumlum. Þvermál nælanna er yfirleitt um 3-5 sm og laufin eða blöðin eru oftast skreytt.
[enska] trefoil brooch

þunnsneið kv.

[skilgr.] Þunnsneið er örþunn sneið af jarðvegi, ætluð til greiningar í smásjá.

[skýr.] Þunnsneiðar eru notaðar við rannsóknir í örformgerðarfræði.

            [enska] thin section

þvottalaug kv.

[skilgr.] Laug sem notuð hefur verið til þvotta að jafnaði.

[enska] warm washing pool

þvottastaður kk.

[skilgr.] Staður þar sem þvottur, ull eða annað (t.d. brennisteinn) var þveginn að jafnaði.

[skýr.] Þvottastaður getur verið lækjarbakki, laug eða brunnhús.

[enska] washing place


 © FSÍ
Bárugötu 3, 101 Reykjavík l tel: +354-5511033 l fax: +354-5511047 l  fsi@instarch.is