
örformgerðarfræði kv.
[skilgr.] Fræðigrein þar sem markmiðið er að rannsaka örformgerð jarðvegs, þ.e. skoða nákvæma samsetningu hans í smásjá.
[skýr.] Með örformgerðarfræði er mögulegt að greina samsetningu náttúrlegra efna í jarðvegi en einnig plöntuleifar, beinabrot, brot úr gripum og öskuleifar svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að greina tegundir ösku, t.d. hvort brennt hafi verið mó, við eða þangi. Áður en sýni eru skoðuð undir smásjá er þeim skipt í svonefndar þunnsneiðar.
[enska] micromorphology
örnefni hk.
[skilgr.] Sérnafn á tilteknum stað.
[skýr.] Örnefni eru mikilvægar heimildir um fornleifar og menningarsögu.
[enska] place name
öskuhaugur kk.
[sh.] öskuhóll, ruslahaugur
[skilgr.] Haugur sem myndast þar sem ösku, beinum og öðrum úrgangi er kastað að jafnaði.
[skýr.] Öskuhaugar eru meðal mikilvægustu minjastaða. Þar má finna vísbendingar um lífsviðurværi fólks og oft gripi. Sjá einnig ruslalag.
[enska] midden, rubbish dump