
efnismenning kv.
[skilgr.] Áþreifanlegir hlutir sem fólk skilur eftir sig.
[skýr.] Efnismenning eitt helsta viðfangsefni fornleifafræðinnar, þ.e. að rannsaka efnismenningu til að draga ályktanir um samfélagið í heild. Undir efnismenningu falla allir gripir og strangt til tekið mannvirki líka.
[enska] material culture
Egyptólógía kv.
[sh.] egypsk fræði
[skilgr.] Fræðigrein sem fjallar um Forn-Egyptaland, einkum menningarsögu, trúarbragðafræði og fornleifafræði.
[enska] Egyptology
eind kv.
[skilgr.] Eind er heiti yfir hvern þann byggingarlega þátt sem greina má í fornleifauppgrefti eða –skráningu. Eind getur t.d. verið veggur, eldstæði, stoðarhola, renna, ræsi eða jafnvel tóft.
[skýr.] Sérhver eind er næstum undantekningalaust samansett úr mörgum einingum (contexts).
[enska] archaeological feature, structural feature
eining kv.
[skilgr.] Minnsti greinanlegi þáttur sem er afmarkaður í fornleifauppgreftri.
[skýr.] Eining getur t.d. verið afmarkað lag, stoðarhola eða fylling. Einingakerfið (single context planning) er hugsað þannig að hver eining samsvari einum atburði í myndunarsögu mannvirkis. Þegar grafið er með einingaraðferðinni (e. single context planning) fær hver einasta eining númer.
[enska] context
einsleitur lo.
[skilgr.] Sagt er að jarðvegur eða lag sé einsleitt þegar það er blæbrigðalaust og allsstaðar svipað að lit og áferð.
[enska] uniform, homogenous
eldsneyti hk.
[skilgr.] Eldsneyti er hvert það efni sem notað er sem eldsmatur, brennt til upphitunar eða til að kynda eld, t.d. til smíða.
[skýr.] Algengt eldsneyti á Íslandi hefur verið mór, birki, rekaviður, viðarkol, tað og þang.
[enska] fuel
eldtinna kv.
[skilgr.] Steintegund, líkast til mynduð úr leifum kísilsvampa sem lifðu á botni Krítarhafsins mikla.
[skýr.] Eldtinna var notuð til að slá eld og steinaldarmenn notuðu eldtinnu í verkfæri. Hún finnst ekki í íslenskri náttúru en hefur verið flutt til landsins og finnast oft brot úr eldtinnu í bæjarrústum.
[enska] flint
endurbygging kv.
[skilgr.] Það þegar mannvirki hefur verið lagfært eða byggt aftur frá grunni.
[skýr.] Oft sjást merki um endurbyggingu í fornleifauppgrefti, t.d. hafa torfveggir oft verið hlaðnir upp
[enska] rebuild
eyktamark hk.
[skilgr.] Eyktamark (einnig: eyktarmark) er fastur punktur í landslagi sem hefur verið notaður sem viðmið við sólargang til að vita hvað tímanum líður.
[skýr.] Eyktamark getur verið t.d. varða eða fjallstindur. Til forna var sólarhringnum skipt upp í eyktir: miðnætti, óttu, miðjan morgun, dagmál, hádegi, nón, miðaftan og náttmál.
[enska] timemarker