Leita

26. apríl 2010
| Fréttir

Ný skýrsla um uppgröft á fornu býli í Kelduhverfi
 
Út er komin skýrslan "Fornleifauppgröftur á fornu býli í Kelduhverfi.  Framkvæmdarannsókn vegna fyrirhugaðs Dettifossvegar" (FS443-0906) sem Fornleifastofnun Íslands vann fyrir Vegagerðina síðastliðið sumar.
            Rannsóknarsvæðið er í landi Meiðavalla í Kelduhverfi.  Tvö svæði voru rannsökuð; svæði I þar sem var tvískipt tóft og svæði II þar sem talið var að leifar af tóft væru við vegkant. Við uppgröft á svæði I kom í ljós tvískipt tóft og mátti greina í henni þrjú megin notkunarskeið ásamt endurbyggingum.  Annað mannvirkið er m.a. talið vera íveruhús með litlu eldstæði en hitt mannvirkið mögulega skepnuhús með 3-4 básum og flór. Á svæði II kom í ljós að um garðlag var að ræða en ekki tóft.
            Ekki er líklegt að um heilsársbústað sé að ræða heldur bendir margt til að seljabúskapur eða að annarskonar árstíðarbundinn búskapur hafi verið stundaður á staðnum. Samkvæmt gjóskulagarannsókn eru mannvirkin frá því fyrir 11. öld og voru löngu fallin úr notkun um 1300.  Fáir gripir komu í ljós við rannsóknina en af þeim má nefna einfalda silfurnælu, beinkamb og hnífa sem eru aldursgreindir til 10. aldar.
 
 
 
 


 © FSÍ
Bárugötu 3, 101 Reykjavík l tel: +354-5511033 l fax: +354-5511047 l  fsi@instarch.is